Nýtt á vefnum
23.3.2010

Vefur fyrir Íslendinga á ferð um eigið land

Ferðamálastofa býður ykkur velkomin í þennan upplýsingabrunn um ferðalög á Íslandi.
23.3.2010

Hversu margar stjörnur?

Gæði gistingar er lykilatriði við skipulagnigu ferðalaga. Því hefur Ferðamálastofa á undanförnum árum haft frumkvæði að samræmdri gæðaflokkun gistingar með stjörnugjöf, bæði gististaða og tjaldsvæða. Jafnframt hefur verið gert samkomulag við Ferðaþjónustu bænda um viðurkenningu á þeirra gæðaflokkunarkerfi.