Vestfirðir

Kannanir hafa sýnt að það sem ferðamönnum, bæði innlendum og erlendum finnst áberandi eftirsóknarverðast á Vestfjörðum er landslagið og náttúran. Annað sem fólk nefnir er kyrrðin, friðsældin og fámennið og tilfinningin að vera einn með sjálfum sér og upplifa eitthvað ósnortið. Einnig gott viðmót heimafólks. Látrabjarg, Ísafjarðardjúp og Hornstrandir eru þeir staðir sem oftast eru nefndir í tengslum við ferðir um Vestfirði en þar fyrir utan er einnig margt áhugavert að sjá og upplifa.

Nánar á www.westfjords.is


Fyrsti "EDEN-gæðaáfangastaður á Íslandi"

Árið 2010 voru Vestfirðir útnefndur fyrsti "EDEN-gæðaáfangastaður á Íslandi". Ferðamálastofa er fyrir Íslands hönd aðili að Evrópska EDEN-verkefninu, sem stendur fyrir „European Destination of Excellence“. Markmið verkefnisins er að vekja athygli á gæðum, fjölbreytileika og sameiginlegum einkennum Evrópskra áfangastaða og kynna til sögunnar nýja, lítt þekkta, áfangastaði vítt og breitt um Evrópu þar sem áhersla er lögð á ferðaþjónustu í anda sjálfbærni. Árlega er haldin samkeppni um gæða áfangastaði í Evrópu og er nýtt þema á hverju ári. Ísland tók í fyrsta sinn þátt í EDEN-verkefninu á árinu 2010, þegar samkeppnin var haldin í 4. sinn. Þema ársins var Sjálfbær ferðaþjónusta tengd vatni (Sustainable Aquatic Tourism). Nokkrar áhugaverðar tillögur bárust en dómnefnd valdi Vestfirði og Vatnavinir Vestfjarða EDEN sem fulltrúa fyrir hönd Íslands.

Nánar um útnefningu Vestfjarða